Friday, May 11, 2007
Stjörnuspá morgunblaðsins
sem ég hef yfirleitt lúmskt gaman af brást mér í vikunni. Hún sagði að
fegurð mín væri ólgandi eins og hafið daginn sem ég var með frunsu,
ekki búin að plokka brúnirnar í 3 vikur, ómáluð, ógreidd... you get the
point
kossar og knús
Lóa
Posted at 11:24 am by
loaolivia
Permalink
Tuesday, May 08, 2007
Á Bandalangsþingi sem haldið var á Hallormsstað um helgina var tilkynnt að áhugaverðasta leiksýning leikársins 2006-2007 væri Listin að lifa hjá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs. Það vill svo skemmtilega til að þetta er einmitt sýningin sem ég var að leika í hér í haust. Það brutust út gríðarleg fagnaðarlæti á okkar borði sem svo vörðu langt fram á morgun og það er ekki laust við að það sé stutt í brosið.
Til hamingju LF, loksins komið að því og með þessa frábæru sýningu! Þetta er líka extra skemmtilegt á nokkra vegu, þetta er 40 ára leikafmæli LF og Sigga Lára skrifði þetta sérstaklega fyrir okkur.
Við dembum okkur svo í æfingar þegar árshátíð Egilsstaða skóla er lokið en ég er að leikstýra hjá þeim og það er ekkert smá saman. Ég er með pínu stress hnút í maganum enda bara 8 dagar í herlegheitin.
Svo er ég að spila á tónleikum sem lofa góðu núna næst komandi sunnudag í kirkjunni klukkan 8, allir að mæta! Spilum konsert eftir Corelli og eitthvað úr árstíðum Vivaldi.
Kossar og knús
Posted at 12:21 am by
loaolivia
Permalink
Sunday, December 17, 2006
Í dag er yndislegur sunnudagur því ég á frí í dag! Langþráður frídagur og undanfari dagsins var 13 klukkustunda svefn, ofboðslega ljúft.
Ég keypti jólagjafirnar í dag og keypti jólakort sem ég er ekki enn búin að ákveða hvort ég actually skrifa á eða ekki.
Ég og fiðlan mín erum orðnar vinkonur aftur, þökk sé Bach og Raphael. Þannig að núna eru bara spilaðar æfingar og skalar til að koma puttunum í lag aftur.
Ætla annars að eyða þessum jólum að stórum hluta á Reyðó hjá mömmu og Þórarni. Tvær fjölskyldur sameinaðar í eina, æsispennandi alveg hreint.
Knús
Lóa
Posted at 11:57 am by
loaolivia
Permalink
Thursday, November 23, 2006
veðurfar eða lífið sjálft
Það væri sko yndislegt að hafa þig hérna Sigga Fanney, þetta er hálf tómlegt á þín skvísa. Við Steinrún munum samt gera okkar besta skal ég segja þér!
Hvað varð um lognið á undan storminum? Á þetta eingöngu við um verður? Ég var stóð alltaf í þeirri trú um að þetta ætti líka við um lífið.
Ætlaði samt að bloga eitthvað fullt en er búin að vera svo stressuð og tætt í dag að hausinn er að flat-lina. Ætla bara að halda áfram að vinna svo ég komist í bólið á skikkanlegum tíma.
Kossar og knús
Lóa
Posted at 03:36 pm by
loaolivia
Permalink
Wednesday, November 22, 2006
Þögul mótmæli.
Réttlætiskennd almennings er misboðið!
Krafan er: Þyngri dóma fyrir nauðganir. - Nýtið refsirammann!
Kröfufundur, um að dómstólar nýti sér refsiramma laganna við
sakfellingu dóma fyrir nauðgun, verður við hús Héraðsdómstólanna
í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði, Selfossi og á Egilsstöðum,
laugardaginn 25.nóvember kl. 16.00.
Á Egilsstöðum flytja Hulda Björg Víðisdóttir og Matti Saarinen
lögin Söknuð eftir Atla Heimi Sveinsson og Jónas Hallgrímsson.
Kvæðið um fuglana eftir Atla Heimi Sveinsson og Davíð Stefánsson.
Oddný Lóa Sævarsdóttir og Steinrún Ótta Stefánsdóttir flytja
Canon í D-dúr eftir Pachelbel.
Við hvetjum Austfirðinga og aðra til að sýna þessu máli
samstöðu með því að fjölmenna á fundinn við Héraðsdóm Austurlands,
Lyngási 12 á Egilsstöðum.
Ég þarf ekki að hafa mörg orð um nauðsyn þess að dómarnir verði
þyngdir til muna! Refsiramminn er 1-16 ára fangelsi en dómarnir
eru yfirleitt undir ári! Ef þið hafið tækifæri til að koma komið
þið þá!!!!!!!! Þetta skiptir okkur öll máli.
Posted at 05:41 pm by
loaolivia
Permalink
Monday, November 20, 2006
Hæbb
Veit einhver um far frá Akureyri til Egilsstaða í vikunni eða um næstu helgi? Það væri ótrúlega vel þegið.
Kossar og knús
Lóa
Posted at 03:30 am by
loaolivia
Permalink
Sunday, November 19, 2006
Það var svakalega svöl sýningin hjá okkur á föstudagskvöldið. Svo svöl að við sáum okkar eigin andadrátt og áhorfendur sátu í útiföstunum sínum með húfur á hausnum. Og á fremsta bekk sat sjálflýsandi maður þar sem endurskinsmerkin voru saumuð við fötin hans. Furðuleg röð atvika skildi húsið eftir í þessu ástandi og það er dáltið erfitt að leika þegar tennurnar glamra og horið er frosið í nösnunum.
Karna mín er komin heim frá Nýja-Sjálandi og verður hér fram í febrúar í "sumarfríi" híhí. Yndislegt að sjá hana, ég er ekki búin að hitta hana í nokkur ár og það var yndislegt yndislegt að hitta hana og knúsa hana. Ég er ótrúlega ánægð með lífið þessa dagana. Óvænt púsl eru að detta inn í spilið og gera myndina fallegri með hverjum deginum.
Kossar og knús
Lóa
Posted at 07:02 am by
loaolivia
Permalink
Friday, November 17, 2006
Hratt up to date
-Ég er ekki komin með atvinnuleyfi í Kanada
-Ekkert atvinnuleyfi og engir peningar equals
-Komin heim til Íslands
-Ekki bara heim til Íslands heldur alla leið heim til Egilsstaða
-Á Egilsstöðum kenni ég á fiðlu, ég kenni tónfræði og ég vinn hjá mömmu minni í Birtu búð
-Hér er ég einnig að leika í snilldar leikriti eftir frú Sigríði Láru
sem nefnist Listin að lifa og er sýnt á Iðavöllum. Komið í leikhús:)
Það verður hugsanlega farið eitthvað ítarlegar í þessa liði seinna meir
en miðað við fyrri frammistöðu á þessari síðu get ég engu lofað.
Kossar og knús
Lóa
Posted at 11:28 am by
loaolivia
Permalink
Friday, September 01, 2006
Til hamingju með daginn elsku mamma mín!!!!!!!!!
Fór til LA um helgina, svaka stuð. Var næstum því neitað um að gang inn í Kanada þegar ég kom aftur!!!!! ó nei!!!! en ég þarf að fara á fætur eftir 5 tíma þannig að það veðrur meira ritað um þetta ævintýri síðar.
Kossar og knús
Lóa
Posted at 12:41 am by
loaolivia
Permalink
Thursday, August 24, 2006
Posted at 01:16 pm by
loaolivia
Permalink